Barnakórinn við Tjörnina heilsar hausti 2026! Skráning er hafin!
Æfingar verða á þriðjudögum í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru öll söngelsk börn og ungmenni hjartanlega velkomin í kórinn.
Litli kór (börn fædd 2020 og 2021)
Æfingar kl. 17:00-17:40
Skráning í Litla kór: https://forms.gle/PdprwTna22yHDBc58
Stóri kór (börn fædd 2015-2019)
Æfingar kl. 16:00-16:50
Skráning í Stóra kór: https://forms.gle/Cvbe4ZDxqG5Qmiy18
Sönghópurinn Stjörnur við Tjörn (7.-10.bekkur)
Æfingar kl. 18:00-19:00
Skráning í Stjörnur við Tjörn: https://forms.gle/xhK3VKEi6s3TVSR49
Skráningargjald fyrir veturinn 2026-2027 eru 16.000kr. Innifalið í gjaldinu er kórpeysa sem er hluti af kórbúning kórsins. Þau sem nú þegar hafa keypt peysu og vantar ekki nýja, borga 12.000 kr fyrir skráningu.
Systkinaafsláttur er 50% fyrir seinni skráningu.
Reikningsnúmer: 0525-26-560170
Kennitala: 560169-4509.
Athugið að setja nafn barns í skýringu og senda tilkynningu á tjarnarbarnakor@gmail.com.
Því miður erum við ekki tengd frístundastyrkjakerfinu.
Mæting á æfingar er mikilvæg sem og þegar kórinn kemur fram. Kórinn tekur þátt í fjölskyldustundum Fríkirkjunnar og tilfallandi verkefnum utan kirkjunnar td. kóramót og söngvahátíð fyrir eldri krakkana. Áhersla er lögð á ríka sönggleði barnanna og samheldni hópanna í heild og í sitthvoru lagi.
Facebook-hópur fyrir alla forsjáraðila er Barnakórinn við Tjörnina. Þar koma ýmsar tilkynningar sem varða kórstarfið. https://www.facebook.com/groups/576147809208762
Stjórnandi kórsins er Álfheiður Björgvinsdótti
Aðstoðarkórstjóri er Lára Ruth Clausen
Netfang: tjarnarbarnakor@gmail.com