Barnakór við Tjörnina!-Viltu vera með?
Barnakór Fríkirkjunnar hefur starfsemi sína á ný eftir sumarfrí.
Allir söngelskir krakkar á aldrinum 6−12 ára eru velkomnir og hvattir til að mæta.
Í vetur verða æfingar á þriðjudögum frá 16:30−17:30. Fyrsta æfing verður þriðjudaginn 8.september.
Nánari upplýsingar gefur Álfheiður Björgvinsdóttir kórstjóri í síma 849-8660 og skrifstofa Fríkirkjunnar í Reykjavík í síma 552-7270.