Barna- og Æskulýðsmessa, sunnudaginn 4. mars kl. 14

Æskulýðsdagurinn

Séra Bryndís Valbjarnardóttir predikar og þjónar fyrir altari.

Stoppleikhópurinn flytur leikritið ,Sálin hennar ömmu Rósu.

Anna Sigga og kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiða tónlistina ásamt
Aðalheiði Þorsteinsdóttur, orgelleikara.

Við hvetjum fermingarbörn og foreldra þeirra sérstaklega til að mæta þar sem senn líður að fermingum.

Verið hjartanlega velkomin.