Ástir og ástríður, hádegistónleikar fimmtudaginn 1.september kl. 12

Fyrstu hádegistónleikar haustsins verða fimmtudaginn 1. september í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Viðfangsefnið er Ástir og ástríður.
Fluttar verða óperuaríur úr óperum eftir Catalani, Boito, Puccini og Leoncavallo.
Flytjendur eru Guðbjörg Tryggvadóttir, sópran og Antonía Hevesi, píanóleikari.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)

Sjáumst í dramatísku hádegi! 🙂