Allra heilagra messa sunnudaginn 7. nóvember kl. 14:00

Allra heilagra messa er sérstaklega helguð minningu látinna og einkum þeirra sem látist hafa á undangengnu ári. Aðstandendum og öllum þeim sem misst hafa er boðið að koma og eiga friðsæla, íhugunar, bæna og minningastund í okkar fagra helgidómi.

Í messunni verður fjallað um merkingu þessa helgidags sem einnig er kallaður “Allra sálna messa”.
Þér gefst kostur á að tendra minningar- og bænaljós.
Gengið verður til altaris.

Jafnframt verður stund fyrir börnin á sama tíma, þar sem við leitumst við að svara spurningum þeirra um eilífðarmálin.

Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur og forstöðumaður Fríkirkjunnar mun predika og sjá um helgihaldið.  Anna Sigríður Helgadóttir tónlistarstjóri og Aðalheiður Þorsteinsdóttir organisti ásamt kór Fríkirkjunnar leiða tónlistina.

VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!