Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni, hádegistónleikar fimmtudaginn 20. júní kl. 12
Flutt verða lög eftir Oddgeir Kristjánsson.
Flytjendur eru Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og Sigurður Helgi Oddsson píanó.
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og eru hluti af tónleikaröðinni “Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni”.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum).
Sjáumst í skemmtilegu hádeg.