Guðsþjónusta og barnastarf sunnudaginn 14. nóvember kl. 14:00

Hvers vegna kristniboð?

Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Kristniboðssambandsins prédikar.
Anna Sigríður Helgadóttir tónlistarstjóri og Aðalheiður Þorsteinsdóttir organisti ásamt kór Fríkirkjunnar leiða tónlistina.
Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari.

Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd
Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá við hæfi.
Biblíusaga dagsins fjallar um Sakkeus, mann sem mörgum líkaði ekki við.
En Sakkeus vildi verða betri maður.
Jesús var fús til að fyrirgefa honum. Jesús elskaði hann eins og allar aðrar manneskjur.

Samvera í Safnaðarheimilinu á eftir – boðið verður upp á kaffi, djús og kökur sem fermingarbörnin sjá um.

VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!

 Fermingarbörn – munið eftir fermingarfræðslunni í Safnaðarheimilinu kl. 12:00