Tónleikaröð til fögnuðar 100 ára afmælis orgels Fríkirkjunnar í Reykjavík
Orgel Fríkirkjunnar í Reykjavík 100 ára.
Í maíbyrjun árið 1926 komu til landsins með Lagarfossi 42 kassar frá Þýskalandi. Farmurinn vó 11 tonn og innihélt nýtt orgel fyrir Fríkirkjuna í Reykjavík. Með í för var orgelsmiður frá Sauer-verksmiðjunum í Frankfurt við ána Oder. Hann setti upp orgelið ásamt Ísólfi Pálssyni, hljóðfærasmiði og uppfinningamanni, föður Páls Ísólfssonar tónskálds og organista, og Pálmari syni hans. Uppsett kostaði hljóðfærið 41.500 krónur, andvirði tveggja einbýlishúsa, og var langstærsta hljóðfæri landsins. Það var við hæfi enda Fríkirkjan stærsta samkomuhús á landinu á þeim tíma.
Páll Ísólfsson hóf störf við Fríkirkjuna sama haust og var orgelið keypt „svo viðunandi orgel til afnota fyrir hr. Pál væri í kirkjunni“, eins og segir í bréfi nokkurra aðila í Reykjavík sem tóku sig saman ásamt stjórn safnaðarins og öfluðu fjár til orgelkaupanna. Árið 1939 gerðist Páll organisti við Dómkirkjunna. Við stöðunni tók þá Sigurður Ísólfsson, bróðir Páls og nemandi. Sigurður var lærður úrsmiður og var einstaklega natinn við að halda hljóðfærinu við.
Fríkirkjuorgelið er elsta pípuorgel landsins sem enn er í notkun – og ber með sér heillandi sögu íslensks tónlistarlífs, orgelsmíði og kirkjusögu allt frá árinu 1926.
Fríkirkjan í Reykjavík fagnar þessum tímamótum með tónleikum:
- september kl. 14 Eyþór Ingi Jónsson;
- október kl. 16 Lára Bryndís Eggertsdóttir;
- nóvember kl. 16 Björn Steinar Sólbergsson;
- nóvember kl. 16 Áki Ásgeirsson;
- desember kl. 16 Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson