Hádegistónleikar – Hymni Libertatis sálmajazz, fimmtudaginn 24. september kl. 12

Fimmtudaginn, 24. september verður fluttur Sálmadjass þar sem teknir eru fyrir nýstárlegir og vel þekktir sálmar, ásamt frumsömdum tónsmíðum sem kallast á við sálmana.
Mikið um spuna en einnig nýjar útsetningar.
(Hymni Libertatis er latína, þýðir “sálmar frelsisins”)

Flytjendur:
Ingrid Karlsdóttir, fiðla
Hjörtur Ingvi Jóhannsson, píanó
Birgir Steinn Theodórsson, kontrabassi

Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.