“Best að borða ljóð” Hádegistónleikar fimmtudaginn 17. september kl.12

Fimmtudaginn, 17. september munu þær Anna Sigga og Alla Þorsteins flytja okkur ljóð úr ýmsum áttum, m.a. út ljóðaflokknum Best að borða ljóð eftir Jóhann G. Jóhannsson við ljóð Þórarins Eldjárns.

Flytjendur:
Anna Sigríður Helgadóttir, sópran
Aðalheiður Þorsteinsdóttir, píanó

Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.