Heilunarguðsþjónusta sunnudaginn 7. júní kl.20
Stundum þurfum við bara að staldra aðeins við.
Leggja frá okkur verkefnin, skjáina, áhyggjurnar og allan hávaðann sem fylgir daglegu lífi.
Heilunarguðsþjónustan er kvöldstund fyrir þau sem þrá meiri kyrrð, dýpri tengingu og rými til að anda.
Við munum sitja saman í kyrrð, hlusta á tónlist, biðja, hugleiða og opna okkur fyrir því sem vill gerast. Fyrir þau sem vilja verður einnig boðið upp á handayfirlagningu og smurningu.
Vígdís Steinþórsdóttir hjúkrunarfræðingur og fyrrilífs dáleiðari fer fyrir hópi græðara. Heilun fer þannig að fram að þú tekur þér sæti hjá græðurum og þau leggja yfir þig hendur, kannski létta snertingu, en þú mátt líka alveg láta vita ef þú vilt ekki snertingu.
Þú þarft ekki að vera viss um neitt.
Þú þarft ekki að hafa öll svörin.
Þú þarft bara að mæta eins og þú ert.
Þú þarft ekki að hafa öll svörin.
Þú þarft bara að mæta eins og þú ert.
Sr. Dagur Fannar Magnússon þjónar fyrir altari og flytur stutta hugleiðingu.
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina
undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista.
undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista.
Verið öll hjartanlega velkomin.