Hátíðarguðsþjónusta, sunnudaginn 24. nóvember kl. 11 f.h.

Í tilefni 114 ára afmælis Fríkirkjunnar í Reykjavík.

–ATH BREYTTAN TÍMA Í ÞETTA EINA SINN –

Messunni er útvarpað á Rás 1

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari.

Umfjöllunarefni: Losum okkur úr viðjum hefðbundinna trúarstofnana og bókstafstrúar.
Sjálfur Jesús frá Nasaret var ekki einusinni rétttrúaður samkvæmt þeirra skilgreiningum.

Tónlistin leikur stórt hlutverk í guðsþjónustunni þar sem
sönghópur Fríkirkjunnar leiðir tónlistina
ásamt tónlistarmönnunum Gunnari Gunnarssyni, píanóleikara og Ásgeiri Ásgeirssyni, gítarleikara

Boðið verður upp á veitingar í safnaðarheimili er guðsþjónustu líkur.

Verið öll hjartanlega velkomin!