Jasshátíðarmessa sunnudaginn 31.ágúst kl.14

Fríkirkjan í Reykjavík hefur um árabil verið samtarfsaðili Reykjavík Jazz (Jazzhátíðar Reykjavíkur) og hýst marga viðburði á vegum hennar.
Að þessu sinni býður Fríkirkjan upp á jazzhátíðarmessu 31. ágúst kl. 14.
Séra Hjörtur Magni predikar.
Fram koma Sönghópurinn við Tjörnina og Hljómsveitin Mantra ásamt gestum,
sem leika og syngja sálma í bland við ballöður – og einnig verður sálmaspuni á fjarstýrt pípuorgel.

Verið öll hjartanlega velkomin.