Safnaðarsalur

Safnaðarsalur Fríkirkjunnar (sjá myndir) er leigður út til veisluhalda tengdum kirkjulegum athöfnum, einnig fyrir afmælisveislur, fundi, kennslu og fl.
Salurinn tekur 90 manns í sæti og 130 -140 í standandi boðum.

Gjald fyrir hverja leigu er ákveðið af safnaðarráði fyrir hvert starfsár og er leigan 25.000 kr fyrir safnaðarmeðlimi en 40.000 kr.  fyrir aðra.

Vegna útleigu fyrir fermingarveislur að vori hafa safnaðarfélagar forgang að safnaðarsal. Þó þurfa þeir að bóka salinn fyrir 1. Október.

Leigugjald verður að fyrirframgreiða.

Þegar salur er leigður skal greiða aukalega fyrir umsjónarmann salarins. Hann  sér um að gera hann tilbúinn og gengur frá honum á eftir. Einnig aðstoða umsjónaramaður/menn á meðan á veislu stendur.  Miðað er við einn starfsmann ef gestir eru 50 eða færri. Það fer þó allt eftir eðli veislunnar og áskilja umsjónaraðilar sér rétt til að meta þörf fyrir aðstoðarfólk í hvert sinn.

Umsjónarmenn salarins eru Þórhildur Þorsteinsdóttir og Páll Pálsson.
Þau eru með alla almenna veisluþjónustu sé þess óskað og veita nánari upplýsingar um salinn. 

Þórhildur – 849 6577
Páll – 866 9963,
 e-mail – pata@visir.is.

Veisluhöldum í safnaðarsal skal vera lokið fyrir klukkan 00:00. Vínveitingar eru leyfðar í safnaðarheimilinu í sérstökum tilfellum s.s. í brúðkaupsveislum og afmælisveislum og þá aðeins borð- og freyðivín. Notkun sterkra vína er ekki leyfð í safnaðarheimilinu.
Allt leirtau er innfalið í leigunni en greiða verður sérstaklega fyrir dúka.
Salurinn er yfirleitt afhentur samdægurs en í sumum tilfellum er hægt að fá hann deginum áður ef ekki er bókuð veisla á þeim degi.

Bókun á sal fer fram í síma: 552-7270 eða í tölvupósti í póstfangið frikirkjan@frikirkjan.is