Barnakórinn við Tjörnina heilsar hausti 2025! Skráning er hafin!

Æfingar verða á þriðjudögum í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru öll söngelsk börn hjartanlega velkomin í kórinn.

Litli kór (börn fædd 2019 og 2020)
Æfingar kl. 17:00-17:40
Litli kór er nú orðinn fullbókaður.
Skráning á biðlista Biðlisti

Stóri kór (börn fædd 2014-2018)
Æfingar kl. 16:00-16:50
Skráning í Stóra kór

Stjörnukór (7.-10.bekkur)
Æfingar kl. 18:00-19:00
Skráning í Stjörnukór

Skráningargjald fyrir veturinn 2025-2026 eru 16.000kr. Innifalið í gjaldinu er kórpeysa sem er hluti af kórbúning kórsins.
Systkinaafsláttur er 50%.
Reikningsnúmer: 0525-26-560170
Kennitala: 560169-4509.
Athugið að setja nafn barns í skýringu og senda tilkynningu á tjarnarbarnakor@gmail.com.

Því miður erum við ekki tengd frístundastyrkjum.
Mæting á æfingar er mikilvæg sem og þegar kórinn kemur fram. Kórinn tekur þátt í fjölskyldustundum Fríkirkjunnar og tilfallandi verkefnum utan kirkjunnar td. kóramótum fyrir eldri krakkana.
Áhersla er lögð á ríka sönggleði barnanna og samheldni hópsins.
Facebook-hópur fyrir foreldra er Barnakórinn við Tjörnina. Þar koma ýmsar tilkynningar sem varða kórstarfið.
Facebook - hópur

Stjórnandi kórsins er Álfheiður Björgvinsdóttir
Aðstoðarkórstjóri er Lára Ruth Clausen
Netfang: tjarnarbarnakor@gmail.com