Fermingarskóli Fríkirkjunnar í Reykjavík 2025-2026.

Fermingarundirbúningur hefst með guðsþjónustu í Fríkirkjunni sunnudaginn 10. ágúst kl. 14:00.

Samþjöppuð fræðsla verður vikuna 11.- 15. ágúst, frá kl.10:30 – 13:30.

Helstu kostir Fermingarskóla Fríkirkjunnar í Reykjavík eru:

  • Samþjöppuð kennsla – minni röskun yfir veturinn.
  • Fermingardagar að eigin vali – þó innan vissra marka.
  • Kennslu og fermingargjöld eru engin!

Fræðslan fer fram að mestu leiti í Fríkirkjunni og safnaðarheimilinu að Laufásvegi 13.
Hver fræðslustund hefst í sal safnaðarheimilisins. Stundvísi er mikilvæg.

Áhersla er lögð á siðferðilega umræðu tengda trúnni og mannlegum samskiptum.
Þekking á mannréttindum þarf að vera grunnstoð í hverju samfélagi.

Í því samhengi berum við saman boðorðin tíu við Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.Auk fræðslu í safnaðarheimilinu og Fríkirkjunni heimsækjum við kirkjur í nágrenninu, Þjóðminjasafnið og Hólavallakirkjugarð við Suðurgötu.
Fermingarbörn eru beðin um að taka með sér blöð, skriffæri og nesti fyrir hvern dag.
Kennslunni lýkur með sameiginlegri guðsþjónustu, sunnudaginn 18. ágúst kl. 14:00.

Auk sumarnámskeiðsins hittumst við mánaðarlega fram á vor.
Í byrjun vetrar er farið í Vatnaskóg og gist yfir nótt.
Við fáum góða gesti í heimsókn, sem fræða okkur um lífsleikni og skaðsemi fíkniefna.

Þau ykkar sem ekki geta nýtt sér samþjappaða kennslu í ágúst geta nýtt fermingarfræðslu vetrarins.

Verið hjartanlega velkomin.
Fríkirkjuprestar.