LJÁÐU OKKUR EYRA, HÁDEGISTÓNLEIKAR, miðvikudaginn 10. apríl kl. 12:15
SÍÐUSTU HÁDEGISTÓNLEIKARNIR Í ÞESSARI TÓNLEIKARÖÐ FARA FRAM MIÐVIKUDAGINN 10. APRÍL KL. 12:15
Listrænn stjórnandi er Gerrit Schuil.
Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur.
Flytjandi með Gerrit á Hádegistónleikum síðustu viku var söngvarinn Elmar Gilbertsson.
Við bjóðum öllu því fólki, sem á leið um Fríkirkjuveginn í hádeginu á miðvikudögum, að njóta með okkur tónlistarlegrar óvissuferðar með mörgu af okkar besta listafólki.
Athugið að aðgangseyrir að tónleikunum er 1.000 kr. og ekki er tekið við greiðslukortum.
Verið hjartanlega velkomin.