„Stefnumót“ Fríkirkjan í Reykjavík, 18. ágúst kl 22:00

Stefnumót í Fríkirkjunni.
Gunnar Gunnarsson organisti og Ellen Kristjánsdóttir söngkona flytja lög um ástina í fjölbreytilegum myndum.
Á milli laga les Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur forna og nýja texta um ást, kærleika og samskipti.
Er ekki kjörið að eiga stefnumót við ástina í Fríkirkjunni á Menningarnótt?