LJÁÐU OKKUR EYRA, HÁDEGISTÓNLEIKAR, Miðvikudaginn 4. apríl kl. 12:15

SÍÐUSTU HÁDEGISTÓNLEIKARNIR Í ÞESSARI TÓNLEIKARÖÐ FARA FRAM MIÐVIKUDAGINN 4. APRÍL KL. 12:15
Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur.

Flytjandi með Gerrit á Hádegistónleikum síðustu viku var sópransöngkonan Hlín Pétursdóttir.

Við bjóðum öllu því fólki, sem á leið um Fríkirkjuveginn í hádeginu á miðvikudögum, að líta við í kirkjunni og eiga þar stund með frábæru tónlistarfólki.

ÓKEYPIS AÐGANGUR – ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR