Guðsþjónusta og barnastarf sunnudaginn 3. okt. kl.14:00

Hjörtur Magni prédikar og þjónar fyrir altari.
Anna Sigríður Helgadóttir tónlistarstjóri leiðir tónlistina ásamt kór Fríkirkjunnar, við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
Fermingarungmenni lesa ritningartexta.

Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin með Margréti Lilju og Ágústu Ebbu í Safnaðarheimilið, þar verður m.a. brúðuleikur, sagðar sögur, sungið og jafnvel föndrað. Börnin fá afhenda örk sem fjallar um biblíusögu dagsins, sem að þessu sinni er um miskunnsama Samverjann.