LJÁÐU OKKUR EYRA, HÁDEGISTÓNLEIKAR, miðvikudaginn 14. mars kl. 12:15
LJÁÐU OKKUR EYRA tónleikaröðin undir stjórn Gerrit Schuil er alla MIÐVIKUDAGA kl.12:15
Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur.
Flytjendur með Gerrit á Hádegistónleikum síðustu viku voru stórsöngkonan Diddú og klarinettuleikarinn Guðni Franzson.
Við bjóðum öllu því fólki, sem á leið um Fríkirkjuveginn í hádeginu á miðvikudögum, að líta við í kirkjunni og eiga þar stund með frábæru tónlistarfólki.
ÓKEYPIS AÐGANGUR – ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR