JÓLASKEMMTUN, sunnudaginn 18. desember kl. 14. Heilunarguðsþjónusta kl. 17.00
Jólaskemmtun Fríkirkjunnar við Tjörnina
Skemmtunin hefst kl. 14 í kirkjunni með stuttri helgistund, síðan verður haldið til safnaðarheimilis þar sem dansað verður í kringum jólatréð, jólasveinninn kemur í heimsókn með glaðning handa börnunum.
Hlökkum til að sjá ykkur!
__________________________________
Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins, kl. 17.00
Friðbjörg Óskarsdóttir leiðir hugleiðslu og heilun, sr. Bryndísi Valbjarnardóttur, les ritningartexta og flytur hugleiðingu.
Anna Sigríður Helgadóttir syngur við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.
Verið öll hjartanlega velkomin