DESEMBER 2017
| 1. | des. | fös. | kl. | 20:00 | Tónleikar – Duo Harpverk |
| 3. | des. | sun. | kl. | 14:00 | Aðventuguðsþjónusta, fyrsti í Aðventu. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. |
| 3. | des. | sun. | kl. | 20:00 | Jólatónleikar KK & Ellen |
| 7. | des. | fim. | kl. | 12:00 | Með helgum hljóm, jólatónleikar til styrktar Landspítalanum. Flytjendur: Auður Gunnarsdóttir, sópran, Þorbjörn Rúnarsson, tenór, Bjarni Thor Kristinsson, bassi, Lilja Eggertsdóttir, píanóleikari og stjórnandi, Kvennakórinn Concordia. Kvennakórinn Heklurnar. |
| 9. | des. | lau. | kl. | 17:00 & 21:00 | Eitthvað fallegt, Jólatónleikar Svavars Knúts, Kristjönu Stefánsóttur og Ragnheiðar Gröndal. |
| 10. | des. | sun. | kl. | 14:00 | Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík. Hefst með jólastund í kirkjunni. Síðan haldið upp í Safnaðarheimili og sungið og dansað í kringum jólatréð með jólasveininum. Kaffi og meðlæti fyrir alla. |
| 12. | des. | þri. | kl. | 20:00 | Jólatónleikar – Ingveldur Ýr og sönghópurinn Spectrum. |
| 13. | des. | mið. | kl. | 20:00 | Kvöldlokkur á jólaföstu – Blásarakvintett Reykjavíkur. |
| 14. | des. | fim. | kl. | 20:00 | Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld. Hjónin Jóga Gnarr og Jón Gnarr tala til kirkjugesta. Fram koma: Kammerkór Hafnarfjarðar undir stjórn Helga Bragasonar, Sönghópurinn við Tjörnina og hljómsveitin Mantra ásamt Gunnari Gunnarssyni sem jafnframt er organisti kirkjunnar og stjórnandi sönghóps, barnakór Fríkirkjunnar undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og barnakór Landakotsskóla undir stjórn Nönnu Hlífar Ingvadóttur og Kjartans F. Ólafssonar . Sr.Hjörtur Magni leiðir stundina. |
| 15. | des. | fös. | kl. | 20:00 | Jólatónleikar – Söngsveitin Elfur |
| 16. | des. | lau. | kl. | 20:00 | Jólatónleikar – Kristjana Arngrímsdóttir |
| 17. | des. | sun. | kl. | 14:00 | Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins. |
| 21. | des. | fim. | kl. | 19:30 | Jólatónleikar – Heiðdís Hanna Sigurðardóttir |
| 23. | des. | lau. | kl. | 16:00 & 21:00 | Tónleikar, Árstíðir |
| 24. | des. | sun. | kl. | 18:00 | Aftansöngur á aðfangadagskvöldi. Söngkonan Auður Guðjohnsen syngur einsöng. Sönghópurinn við Tjörnina syngur jólin inn og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina. |
| 24. | des. | sun. | kl. | 23:30 | Miðnætursamvera á jólanótt. Ellen Kristjánsdóttir ásamt strengjasveit. Sr. Hjörtur Magni talar til viðstaddra. Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni. Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti! |
| 25. | des. | mán. | kl. | 14:00 | Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól. Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni. |
| 31. | des. | sun. | kl. | 17:00 | Aftansöngur á gamlársdag. Hljómsveitin Eva ásamt Sönghópnum við Tjörnina leiða safnaðarsöng ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina |