Fermingarskóli Fríkirkjunnar í Reykjavík að hefjast!
Fermingarskólinn hefst með guðsþjónustu í Fríkirkjunni sunnudaginn 15. ágúst kl. 14:00.
Fermingarskólinn stendur yfir í samþjappaðri fræðslu, vikuna 16.- 20. ágúst, frá kl.10:00 – 13:30.
Fræðslan fer fram að mestu leiti í Fríkirkjunni og safnaðarheimilinu að Laufásvegi 13.
Hver fræðslustund hefst í sal safnaðarheimilisins. Stundvísi er mikilvæg.
Í kennslunni er stuðst við bókina „Líf með Jesú” sem fæst í flestum bókaverslunum.
Áhersla er lögð á siðferðilega umræðu tengda trúnni og mannlegum samskiptum.
Þekking á mannréttindum þarf að vera grunnstoð í hverju samfélagi. Í því samhengi berum við saman boðorðin tíu við Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Auk fræðslu í safnaðarheimilinu og Fríkirkjunni heimsækjum við kirkjur í nágrenninu, Þjóðminjasafnið og Hólavallakirkjugarð við Suðurgötu.
Fermingarbörn eru beðin um að taka með sér blöð, skriffæri og nesti fyrir hvern dag.
Kennslunni lýkur með sameiginlegri guðsþjónustu, sunnudaginn 22. ágúst kl. 14:00.
Auk sumarnámskeiðsins hittumst við mánaðarlega fram á vor.
Í byrjun vetrar er farið í Vatnaskóg og gist yfir nótt.
Við fáum góða gesti í heimsókn, sem fræða okkur um lífsleikni og skaðsemi fíkniefna.
Þau ykkar sem ekki geta nýtt sér samþjappaða kennslu í ágúst, eru boðnir aðrir valkostir um áramót eða að vori.
Helstu kostir Fermingarskóla Fríkirkjunnar í Reykjavík eru:
- Samþjöppuð kennsla – minni röskun yfir veturinn.
- Fermingardagar að eigin vali – þó innan vissra marka.
- Kennslu og fermingargjöld eru engin!
Á eftir guðsþjónustu sunnudaginn 15. ágúst, verður fundur með fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra. Þar fer skráning fram, einnig er hægt að senda inn skráningu á bryndis@frikirkjan.is.
Verið hjartanlega velkomin.
Bestu kveðjur.
Hjörtur Magni Jóhannsson
Fríkirkjuprestur
Bryndís Valbjarnardóttir
Fríkirkjuprestur
Anna Hulda Júlíusdóttir
Umsjón fermingarstarfs