Vinir í bata. Tólf spora vinna – andlegt ferðalag, þriðjudaginn 11. október kl. 20.00
Síðasti opni fundurinn verður haldinn í Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 11. október 2011, kl. 20.00-22:00
Það eru margvíslegar tilfinningar innra með okkur sem við eigum stundum erfitt með að skilja. 12 spora vinnan er traust tækifæri til að taka til í vistaverum hugans og uppskera aukin lífsgæði bæði félagslega og tilfinningalega. Vinir í bata deila með þátttakendum hvernig sporin leiddu þau til hamingjuríks lífs, vellíðunar, áhuga og árangurs í lífinu. Haldnir hafa verið þrír opnir fundir, en á þessum fundi er hópunum lokað og hin eiginlega sporavinna hefst. Hver fundur hefst í kirkjunni með íhugun. Síðan er farið yfir í safnaðarheimili Fríkirkjunnar að Laufásvegi 13. Mælt er með að mæta á alla opnu fundina.
Komið og kynnist frábæru mannræktarstarfi.
Nánari upplýsingar á heimasíðunni www.viniribata.is og bryndis@frikirkjan.is S. 860 8845.
“Guð – gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og visku til að greina þar á milli.”
Reinhold Niebuhr Carnegie