Fréttatilkynning – REGNBOGAHÁTÍÐ
GUÐSÞJÓNUSTA Í FRÍKIRKJUNNI Í REYKJAVÍK
Í SAMSTARFI VIÐ SAMTÖKIN 78
TILEFNI: Gildistaka nýrra hjúskaparlaga.
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 27. JÚNÍ 2010 KL. 20.00
Prestur: Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur í Fríkirkjunni
Fram koma:
Páll Óskar, Hörður Torfa, Sigga Beinteins, Bergþór Pálsson, Lay Low, Maríus Hermann Sverrisson, Hreiðar Ingi Þorsteinsson, Andrea Gylfadóttir, Agnar Már Magnússon píanóleikari og Fríkirkjukórinn undir stjórn Önnu Sigríðar Helgadóttur.
————
Nýtt stjórnarfrumvarp um breytingu á hjúskaparlögum var samþykkt nýlega á Alþingi. Hér eftir gilda einungis ein hjúskaparlög í landinu fyrir alla, óháð kynhneigð fólks. Þetta er mikilvægt skref og tryggir að samkynhneigð pör sitja loks við sama borð og gagnkynhneigðir og geti gengið í hjónaband.
Lögin munu taka gildi sunnudaginn 27. Júní nk. Af því tilefni vilja Samtökin 78 halda Regnbogahátíð með guðsþjónustu í Fríkirkjunni í Reykjavík, næsta sunnudagskvöld kl. 20.00. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur í Fríkirkjunni, mun leiða þessa samverustund ásamt fjölda tónlistarfólks, sem talið er hér upp fyrir ofan.
Dagsetningin er engin tilviljun, en 27. Júní er opinber Gay Pride hátíðsdagur víða um heim – en þann dag árið 1969 hófust Stonewall uppþotin í New York, sem talin eru marka upphaf réttindabaráttu samkynhneigðra.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir sem vilja samgleðast samkynhneigðum, fjölskyldum og velunnurum þeirra á þessum mikilvæga degi.
Samtökin 78 bjóða svo kirkjugestum upp á léttar veitingar í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg.