Haustlitaferð safnaðarfólks Fríkirkjunnar við Tjörnina 2. október 2011.

Sunnudaginn 2. október 2011 verður haustferð um Suðvesturland. Lagt er af stað frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 10.00 árdegis. Ekið er til Þingvalla og notið fegurðar haustlitanna. Þaðan liggur leiðin um nýja veginn á Lyngdalsheiði, um Laugarvatn og að Sólheimum í Grímsnesi. Á Sólheimum verður borinn fram léttur hádegisverður og síðan gengið til kirkju. Kór Fríkirkjunnar undir stjórn Önnu Siggu og Aðalheiðar sjá um tónlist og prestar Fríkirkjunnar þjóna fyrir altari og prédika. Eftir messu höldum við niður Skeiðin og Tungurnar inn á þjóðveg og heimsækjum Vatnsholt í Flóahreppi, sem er rómaður staður fyrir margt s.s. útsýni, dýrahald og frábæra aðstöðu. Í Vatnsholti býr Fríkirkjufólk, þau Margrét og Jóhann, þar verður boðið upp á eftirmiðdagskaffi. Eftir ánægjulegan dag, njótum við heimferðarinnar.

Ferðin er hugsuð fyrir alla aldurshópa, en við hvetjum heldriborgara sérstaklega til að njóta dagsins saman. Verð kr. 3.000.
Dagsetning: Sunnudagurinn 2. október 2011.
Brottför: Fríkirkjan í Reykjavík, kl. 10.00 árdegis.
Koma: Fríkirkjan í Reykjavík, um kl. 18.00.
Ferð: Reykjavík-Þingvellir-Lyngdalsheiði-Laugarvatn-Sólheimar-Skeiðin-Tungurnar-Vatnsholt í Flóahreppi-Reykjavík
 Rútan getur stoppað á ákveðnum stöðum á leið út úr bænum samkvæmt óskum.
Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst á frikirkjan@frikirkjan.is eða í síma: 552 7270. Nánari upplýsingar veitir Bryndís í síma: 860 8845.