Kristileg gestrisni
Ágæta fríkirkjufólk að gefnu tilefni;
Mér skilst að sumum hafi brugðið við að sjá frétt af bænahaldi múslima í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar í síðustu viku. Það er skiljanlegt. Í fréttum RÚV og Bylgjunnar kom það skýrt fram að hér var um kristilega gestrisni að ræða af okkar hálfu að hætti Jesú frá Nasaret. Það kom einnig greinilega fram að með því að sýna þessa gestrisni að þá værum við alls ekki að skrifa undir kenningar eða þá heimsmynd sem gestir okkar aðhyllast.
Líklegast hef ég sem forstöðumaður trúfélags gengið hvað lengst í því í gegnum árin að vara við skaðlegri bókstafstrú, sama hvar hana er að finna, jafnframt því hef ég boðað að mannréttindi séu æðri öllum trúarlegum kreddum. Það hefur ekki breyst og þar hefur ekkert verið gefið eftir.
Vísa ég hér í orð mín í útvarpspredikun minni í lok nóvember árið 2014 (má lesa í heild á heimasíðu okkar); Sjá hér
“Baráttan fyrir mannréttindum hér á landi hefur kostað blóð, svita og tár og þar megum við ekki gefa þumlung eftir, ekki einn stafkrók. Við viljum ekki láta sem sú barátta hafi ekki átt sér stað. Við viljum hvorki láta ógilda hana né vanvirða. Við viljum ekki þann boðskap sem boðar mismunun kynjanna og fordóma gagnvart vissum samfélagshópum. Við viljum ekki þá aðila sem stuðla að gettómyndun í okkar samfélagi. Við viljum ekki þá samfélagshópa sem vilja færa okkur aftur til myrkra miðalda hvað samfélagsgerð varðar, hvað stjórnarfar varðar og hvað heimsmynd varðar. Ég tel að einmitt hér sé að finna undirliggjandi ótta margra Íslendinga. Við eigum ekki að vera feimin við að hafa orð á þessu. Við eigum ekki að vera sem saklausir einfeldningar sem valda síðari tíma vanda. Við eigum að tjá okkur um þetta á opinberum vettvangi og forðast allar öfgar og ofstæki”.
Það að sýna úthýstum og húsnæðislausum gestristni er vissulega í anda Jesú frá Nasaret og stuðlar vonandi að bættum samskiptum og gagnkvæmum skilningi.
Bjartar sumarkveðjur,
Hjörtur Magni
Fríkirkjuprestur við Tjörnina