Ljúfir tónar með Hörpu Þorvalds – hádegistónleikar fimmtudaginn 14.apríl kl. 12
Fimmtudaginn 14. apríl mun Harpa Þorvaldsdóttir flytja tónlist af ný útkominni plötu sinni á hádegistónleikum í Fríkirkjunni.
Harpa mun spila á píanó og syngja ásamt Kristni Svavarssyni á saxófón.
Kristinn er gamalreyndur fyrrum meðlimur í hljómsveitinni Mezzoforte þegar þeir voru upp á sitt besta. Þau koma til með að spila lög af plötunni Hörpu sem kom út í lok desember ásamt þjóðlegri stemmningu.
Platan er róleg og lágstemmd og má búast við ljúfri stemmningu. Lögin eru frumsamin ásamt einu þjóðlagi sem slæðist með.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér tónlistina nánar geta farið inn á síðuna harpathorvalds.bandcamp.com.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)