Fjölskylduguðsþjónusta, sunnudaginn 20. september kl. 14.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur, leiðir stundina.
Fermingarbörn taka þátt.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Aðstandendur fermingarbarna eru hvattir til að mæta og vera með börnum sínum í guðsþjónustunni.
Verið öll hjartanlega velkomin.