Helgihald yfir páskahátíðina.
Skírdagur 2. apríl kl. 14
Fermingarmessa
Séra Bjarni Karlsson þjónar fyrir altari ásamt Erlu Björk Jónsdóttur, guðfræðingi.
Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina ásamtGunnari Gunnarssyni, organista.
Fermingarbörn dagsins :
Elena Dís Ásgeirsdóttir
Ítalía.
Eva Berglind Brynjarsdótti
Sviss.
Freyja Benediktsdóttir
Þrymsölum 3, 201 Kópavogur.
Kristín Brynja Þorvaldsdóttir
Birkiási 18, 210 Garðabær.
Sara Lind Þorkelsdóttir
Freyjubrunni 8, 113 Reykjavík.
Barnastarf kirkjunnar fer fram á kórloftinu á meðan á messu stendur.
Föstudagurinn langi 3. apríl kl.10 – 16
Lestur Passíusálma.
Halldór Hauksson les sálmana og leikur af fingrum fram á píanó út frá nokkrum af gömlu lögunum svokölluðu, sem íslensk alþýða söng Passíusálmana við á árum áður.
Flutningurinn hefst kl. 10 f.h. og stendur í um fimm klukkustundir.
Aðgangur er ókeypis.
Föstudagurinn langi 3. apríl kl.17
Föstutónlist í bland við blús.
Sönghópur Fríkirkjunnar flytur hefðbunda föstutónlist í bland við óvæntan blús undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Einsöngvari er Erna Blöndal, Þorleifur Gaukur Davíðsson leikur á munnhörpu og Tómas R. Einarsson á kontrabassa. Flutt veða lög eftir, Trond Kverno, Elgar, Rutter, Ernu Blöndal, Sigurð Sævarsson, og Svanfríði Hlín Gunnarsdóttur.
Páskadagur 5. apríl kl. 9
Hátíðarguðsþjónusta, sigri ljóss og lífs fagnað.
Erla Björk Jónsdóttir, guðfræðingur, leiðir athöfnina.
Gunnar Gunnarsson, organisti, ásamt sönghóp Fríkirkjunnar sjá um tónlistarflutning.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Veitingar í safnaðarheimili, í boði kvenfélagsins, eftir guðsþjónustuna.
Verið hjartanlega velkomin.