Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík

Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík var stofnaður á haustmánuðum 2008 og eru meðlimir hans tólf talsins.
Meðlimir  eru allt ungt fólk, á aldrinum 19 – 28 ára, og stunda ýmist söng- eða hljóðfæranám nema hvoru tveggja sé.
Þau eru fljót að lesa nótur og hafa brennandi áhuga á að kynna sér sem flesta stíla tónlistarinnar.
Sönghópurinn syngur fyrst og fremst við Guðsþjónustur en halda líka tónleika í kirkjunni tvisvar á ári.

Fríkirkjan í Reykjavík er stolt af sönghóp sínum, enda eru meðlimir hans tónlistarfólk framtíðarinnar.

Stjórnandi sönghópsins er Gunnar Gunnarsson, organisti kirkjunnar.