Guðsþjónusta sunnudaginn 20. mars kl. 14:00

Annar sunnudagur í föstu (reminiscere).
 
Lesið verður úr Markúsarguðspjalli kafla 10.46-52. Þar segir frá Bertímeusi blinda sem bjó í Jeríkó. Predikunin mun fjalla um bænina og spurningunni um hvert leiðarljós okkar er í lífinu.
 
Anna Sigríður Helgadóttir og kór Fríkirkjunnar leiða tónlistina við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur orgelleikara.
Séra Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
 
Barnastarfið hefst sem fyrr í kirkjunni. Síðan verður haldið í safnaðarheimilið þar sem Margrét Lilja og Ágústa Ebba  verða með skemmtilega dagskrá. 
Biblíusagan fjallar um “Týnda peninginn,” í Lúkasarguðspjalli kafla 15 vers 1-15, (Lúk.15:1-15). Frásögnin leggur áherslu á að hvert og eitt okkar er mjög dýrmætt í augum Guðs og Guð vill ekki að við týnum honum.
 
 Verið öll hjartanlega velkomin!