Dagskrá desember 2014
| 2. | des. | þri. | kl. | 20:00 | Kvöldlokkur, Jólatónleikar, Blásarakvintett Reykjavíkur. |
| 4. | des. | fim. | kl. | 20:00 | FIMMHUNDRUÐTUTTUGUOGFIMM – Útgáfutónleikar Gunnar Gunnarsson, organisti Fríkirkjunnar, leikur gamla og nýja sálma af nýútkominni plötu, 525, ásamt þeim Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara og Þorgrími Jónssyni kontrabassaleikara. Aðgangseyrir 2000 kr. |
| 7. | des. | sun. | kl. | 14:00 | Tónleikar, Suzuki aðventutónleikar. |
| 7. | des. | sun. | kl. | 20:00 | Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld. Ræðumenn kvöldsins verða söngvaskáldið Svavar Knútur og séra Hjörtur Magni. Fram koma Einar Clausen, Svavar Knútur, Sönghópur Fríkirkjunnar, Barnakór Fríkirkjunnar, Skólakór Landakotsskóla, Þorgrímur Jónsson, kontrabassaleikari, Ásgeir Ásgeirsson, gítarleikari og Gunnar Gunnarsson sem jafnframt er organisti kirkjunnar og stjórnandi sönghóps. Álfheiður Björgvinsdóttir er stjórnandi barnakórs. |
| 14. | des. | sun. | kl. | 14:00 | Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík. Hefst með jólastund í kirkjunni. Síðan haldið upp í Safnaðarheimili og sungið og dansað í kringum jólatréð með jólasveininum. Kaffi og meðlæti fyrir alla. |
| 14. | des. | sun. | kl. | 20:00 | Helg jól. Aðventu- og jólasöngvar og sálmar í kyrrlátum jazzútsetningum. Flytjendur: Karl Olgeirsson – píanó, Andrés Þór – gítar, Jón Rafnsson – kontrabassi. Aðgöngumiðar seldir við innganginn. |
| 15. | des. | mán. | kl. | 21:00 | Jólatónleikar, KK og Ellen. Jólatónleikar KK og Ellenar hafa verið einn af ómissandi og föstu liðunum í aðdraganda jóla hjá mörgum siðastliðin ár. |
| 17. | des. | mið. | kl. | 20:30 | Stjarnanna fjöld. Jólatónleikar Kristjönu Arngrímsdóttur. Aðgöngumiðar seldir við innganginn. Forsala aðg.miða er á Café Loki við Skólavörðuholt. Verð 2.500,- |
| 19. | des. | fös. | kl. | 20:00 | Eitthvað Fallegt. Jólatónleikar söngvaskáldanna Ragnheiðar Gröndal, Kristjönu Stefánsdóttur og Svavars Knúts. |
| 21. | des. | sun. | kl. | 14:00 | Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins. |
| 21. | des. | sun. | kl. | 17:00 | Jólatónleikar, Guja Sandholt. |
| 23. | des. | þri. | kl. | 16:00 og 21:00 | Árstíðir í Fríkirkjunni, Hátíðartónleikar. Að kvöldi Þorláksmessu mun hljómsveitin Árstíðir halda sínu árlegu hátíðartónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. Skemmtileg hefð hefur skapast fyrir þessum tónleikum sem voru haldnir í fyrsta sinn árið 2008. Þeir hafa síðan þá verið haldnir á hverju ári og hefur þar jafnan myndast mikil hátíðarstemning. Að venju verða leikin frumsamin lög Árstíða í bland við valið jóla og hátíðarefni. |
| 24. | des. | mið. | kl. | 18:00 | Aftansöngur á aðfangadagskvöldi. Söngkonana Nathalía Druzin Halldórsdóttir syngur einsöng. Sönghópur Fríkirkjunnar syngur jólin inn og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni þjónar fyrir altari. |
| 24. | des. | mið. | kl. | 23:30 | Miðnætursamvera á jólanótt. Páll Óskar og Monika Abendroth ásamt strengjasveit. Sr. Hjörtur Magni talar til viðstaddra. Sönghópur Fríkirkjunnar ásamt Gunnari Gunnarssyni. Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti! |
| 25. | des. | fim. | kl. | 14:00 | Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól. Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, Sönghópur Fríkirkjunnar ásamt Gunnari Gunnarssyni. |
| 28. | des. | sun. | kl. | 18:00 | Tónleikar, Heimir Sindrason |
| 31. | des. | mið. | kl. | 17:00 | Aftansöngur á gamlárskvöldi. Brynhildur Þóra Þórsdóttir syngur einsöng og Sigurður Flosason leikur á saxófón. |