Guðsþjónusta og barnastarf sunnudaginn 28. nóvember kl. 14:00

Fyrsti sunnudagur í aðventu
Hið sígræna greni aðventukransins táknar lífið í Kristi og hringurinn táknar eilífðina. Fyrsta kertið nefnist friðarkerti eða spádómakerti.
Það á að minna okkur á fyrirheit spámannanna í Gamla testamentinu, sem sögðu fyrir um komu frelsarans.  Við kveikjum á því í guðsþjónustunni og syngjum saman:

Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúbarnið er.

Meðlimir í Gídeonfélaginu lesa ritningarlestra og kynna starfsemi sína. Kór Fríkirkjunnar ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur organista mun leiða tónlista. Séra Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.

Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin með Margréti Lilju og Ágústu Ebbu í Safnaðarheimilið, þar verður m.a. brúðuleikur, sagðar sögur, sungið og jafnvel föndrað. Börnin fá afhenda örk sem fjallar um biblíusögu dagsins, sem að þessu
sinni fjallar um vinkonurnar Elísabetu og Maríu. 

VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!