FERMINGAR Í FRÍKIRKJUNNI VIÐ TJÖRNINA
Fermingarfræðsla Fríkirkjunnar hefst mánudaginn 14. ágúst og stendur til og með 18. ágúst.
Helstu kostir fermingarskólans eru:
- Samþjöppuð kennsla – minni röskun yfir veturinn.
- Aðrir valkostir í boði.
- Fermingardagur að eigin vali – þó innan vissra marka.
- Fermingarfræðslan er ykkur kostnaðarlaus!
Dreifð búseta.
Fermingarskólinn er svar safnaðarins við dreifðri búsetu safnaðarfólks.
Fermingarskólinn er starfræktur síðustu vikuna fyrir setningu grunnskólanna, koma þá nemendur daglega til safnaðarheimilisins og njóta þar fræðslu.
Yfir veturinn koma þau í fræðslu einn sunnudagsmorgun í mánuði og til kirkju 10 sinnum sunnu- og helgidaga.
Farið verður í tveggja daga fermingarferðalag. Einnig taka fermingarungmenni virkan þátt í helgihaldi um jól og páska ásamt almennum guðsþjónustum safnaðarins.
Kennslugjöld eru engin.
Engin kennslugjöld eru innheimt. Auk þess, sem svokölluð kyrtlaleiga fellur niður. Fermingarbörnin þurfa þó að kaupa kennslugögn vegna fermingarfræðslunnar.
Jafnaldrar velkomnir.
Eigi fermingarbarnið góða vini, – vinkonu, frænda eða frænku, sem einnig eiga að fermast, þá eru þau velkomin. Vilji börnin fermast saman þá gerist það á þeim degi, sem fjölskyldurnar koma sér saman um og í samráði við safnaðarprest.
Frjálst val á fermingardegi.
Þið fjölskyldan, getið valið hvaða dag barnið fermist ef áætlaðir fermingardagar henta ekki, þó innan ákveðinna marka. Vegna stærðar Fríkirkjunnar við Tjörnina er hægt að bjóða ættingjum og vinum til fermingarinnar í kirkjunni en ekki eingöngu til veislunnar, eins og gjarnan er gert. Færri fermingarbörn fermast í einu og fær athöfnin því meira vægi í hugum flestra og persónulegri blæ. Með þessu er ætlunin að stuðla að fermingin fái veglegri sess meðal fjölskyldunnar.
Áætlaðir fermingardagar árið 2024
Fermingarmessur eru á eftirtöldum dögum. Foreldrar eru hvattir til að velja einn af þeim.
24. mars, pálmasunnudagur
28. mars, skírdagur
07. apríl, sunnudagur
14. apríl, sunnudagur
21. apríl sunnudagur
25. apríl, sumardagurinn fyrsti
28. apríl, sunnudagur
05. maí, sunnudagur
Safnaðarsalur.
Safnaðarsalur Fríkirkjunnar er leigður út til veisluhalda tengdum kirkjulegum athöfnum, einnig fyrir afmælisveislur, fundi og kennslu. Vegna útleigu fyrir fermingarveislur að vori hafa safnaðarfélagar forgang að safnaðarsal. Þó þurfa þeir að bóka salinn fyrir 1. október. Bókanir fara í gegnum skrifstofu safnaðarins.
Að gefnu tilefni.
Við viljum árétta að þau fermingarbörn sem ekki taka þátt í fermingarstarfinu hjá okkur geta tekið þátt í fermingarstarfi þjóðkirkjunnar og greitt þau gjöld sem þar eru innheimt.
Í slíkum tilvikum er engin þörf á að skrá fermingarbarnið úr Fríkirkjunni og í Þjóðkirkjuna. Prestum þjóðkirkjunnar ber að þjóna öllum innan sóknarmarka..
Ef farið væri fram á slíkt við ykkur af þjóðkirkjuprestum þá biðjum við ykkur vinsamlegast að láta okkur vita. Sama trúin er játuð í báðum trúfélögunum Fríkirkjunni og Þjóðkirkjunni. Frekari upplýsingar um þetta má fá á vefsíðu fríkirkjunnar www.frikirkjan.is
Við hvetjum ykkur til að hafa samband og skrá þátttöku eða afla frekari upplýsinga í síma
552-7270 eða senda okkur tölvupóst á frikirkjan@frikirkjan.is
Skrifstofa safnaðarins í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að Laufásvegi 13, er opin alla virka daga frá 9:00 til 16:00.
Með kærri kveðju og von um að heyra frá ykkur sem fyrst,
Hjörtur Magni Jóhannsson og Sigurvin Lárus Jónsson
Fríkirkjuprestar