Hádegistónleikaröðin “Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni” fimmtudaginn 13. október kl. 12

Fimmtudaginn 13. október mun djasskvartettinn KuVenda spila á hádegistónleikum í Fríkirkjunni við Tjörnina.
Hljómsveitin KuVenda er fjölþjóðlegt samstarf milli íslenska gítarleikarans Andrésar Þórs, slóvakíska víbrafónleikarans Miro Herak, hollenska trommuleikarans Vinsent Planjer og ítalska bassaleikarans Andrea Caruso.
Kvartettinn gerir út frá Hollandi og var stofnaður í ágúst 2019 og kom fyrst fram á Jazz in de Gracht jazzfestivalinu í Den Haag í Hollandi það ár.
Andrés, Miro og Vinsent hafa allir starfað lengi saman í ýmsum verkefnum frá því þeir voru sjálfir við nám í Konunglega Conservatoríinu í Den Haag í kringum árið 2000 og fyrir þetta verkefni fengu þeir sér til fulltingis ítalska bassaleikarann Andrea Caruso.
Tónlist KuVenda blandar saman hinum opna hljóm evrópska nýjazzins, lýrískum hljóðmyndum norrænnar jazztónlistar og hrynkrafti byggðum á breiðum áhrifum ýmissrar samtímatónlistar og tónlistarstíla. Fyrsta útgáfa KuVenda er EP platan Step One sem er aðgengilega á öllum streymisveitum.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Almennt miðaverð er 2.000 kr.

Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.