Guðsþjónusta og barnastarf sunnudaginn 5. desember kl. 14:00
Annar sunnudagur í aðventu
Við kveikjum á öðru kertinu í aðventukransinum. Það kerti er nefnt Betlehemskertið og minnir okkur á að Jesús fæddis í borginni Betlehem. Fyrsta kertið er kallað spádómakerti – það minnir okkur á spámennina í Gamla testamentinu, sem sögðu fyrir um komu frelsarans Jesús.
Anna Sigríður Helgadóttir tónlistarstjóri og Hilmar Örn Agnarsson organisti ásamt kór Fríkirkjunnar leiða tónlistina. Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá við hæfi. Börnin fá afhenta dæmisögu dagsins sem er sagan um hirðana og verður fjallað um hana.
VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!