GUÐSÞJÓNUSTA OG BARNASTARF sunnudaginn 16. janúar kl. 14:00
Fermingarbörn lesa upp úr ritningunni.
Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller tónlistarstjórar ásamt kór Fríkirkjunnar leiða tónlistina. Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá – föndur og leiki.
Börnin fá afhenta dæmisögu dagsins sem er sagan af Zakkeusi og verður fjallað um hana.
Fermingarbörnin bjóða upp á kaffi og kökur í Safnaðarheimilinu á eftir.
VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!