Þriðji sunnudagur í aðventu 12. desember
kl. 14:00 – Jólatrésskemmtun
Skemmtunin hefst í kirkjunni með stuttri helgistund. Við kveikjum á þriðja kertinu í aðventukransinum sem er nefnt Hirðakerti. Þá verður haldið í Safnaðarheimilið þar sem dansað verður í kringum jólatréð, jólasveinninn kemur í heimsókn með góðar gjafir og svo fá allir hressingu.
kl. 20.00 – Aðventukvöld
Ræðumaður Guðrún Ögmundsdóttir.
Anna Sigga tónlistarstjóri og Aðalheiður organisti ásamt Kór Fríkirkjunna sjá um tónlistina. Hjörtur Magni og Bryndís Valbjarnardóttir leiða stundina.
Hlökkum til að sjá sem flest ykkar til að njóta stundarinnar með okkar frábæra fólki.