SÆLUSTUND Í SKAMMDEGINU – Tónleikar miðvikudaginn 7. desember kl. 20:00
Fríkirkjan í Reykjavík mun ljóma af gleði og glaum miðvikudagskvöldið 8. desember næstkomandi, þegar þar verður haldin sannkölluð „Sælustund í skammdeginu.“ Þar leiða saman hesta sína Karítur Íslands, söngvaskáldið Svavar Knútur og hljómsveitin Sing for me Sandra ásamt hinum valinkunnu söngdrottningum Önnu Siggu Helgadóttur og Kristjönu Arngrímsdóttur, sem kemur fram ásamt dóttur sinni, Ösp.
Svavar Knútur og Karítur Íslands, sem er stúlknakór undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, efndu á haustmánuðum til samstarfs, þar sem þau sungu saman lagið Across the universe eftir John Lennon, við tendrun friðarsúlunnar í Viðey. Í framhaldi af því samstarfi glæddist áhugi á því að breiða út frekari gleði og kærleika. Í því skyni var ákveðið að halda sælustund í Fríkirkjunni í desember, þar sem hreinn og tær andi jólanna mun svífa yfir vötnum.
Á Sælustund í Skammdeginu verður blandað saman söng, hugvekjum og sögum og minnt á allt hið góða og fagra, sem er ekki gagnslaust, nú á dimmasta tíma ársins. Listafólkið mun syngja og leika bæði saman og hver sveit og listamaður fyrir sig. Áherslan verður lögð á hlýju og mannlega nærveru, þar sem áhorfendur munu ekki síður spila mikilvægt hlutverk.
Karítur Íslands eru skipaðar ungmeyjum úr Biskupstungum og víðar að og hafa þær flestar starfað saman í rúman áratug. Karíturnar hafa m.a. sungið með Megasi, Ragga Bjarna, Diddú, Mugison og fleiri landsþekktum listamönnum við gríðargóðar undirtektir. Þær hafa komið fram á Listahátíð í Reykjavík, Iceland Airwaves og Myrkum músíkdögum.
Svavar Knútur hefur undanfarin ár notið vaxandi vinsælda sem söngvaskáld og m.a. sungið með sinfóníuhljómsveit Íslands, Gunnari Þórðarsyni og mörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins. Önnur sólóplata Svavars „Amma“ er nýkomin út og hefur hlotið frábærar viðtökur. Þar syngur Svavar þekkt íslensk sönglög í einföldum og hugljúfum trúbadoraútsetningum.
Sing for me Sandra er skipuð fimm ungum piltum, sem syngja engilbjörtum röddum þokka- og gáskafullt nýbylgjurokk. Þeir hafa getið sér gott orð fyrir frábærar og margbrotnar raddanir, angurværar lagasmíðar og glaðværa sviðsframkomu. Ennfremur hafa þeir undanfarið tekið upp á því að leika lög sín órafmögnuð, unnendum þjóðlagatónlistar til mikillar gleði. Sveitin gaf nýlega út plötuna Apollo’s Parade, sem hefur hlotið prýðilega dóma.
Sælustund í Skammdeginu hefst kl. 20 og er miðaverð 2.000 kr. í forsölu en 2.500 við dyrnar.