Guðsþjónusta og barnastarf sunnudaginn 28. nóvember kl. 14:00
Fyrsti sunnudagur í aðventu
Hið sígræna greni aðventukransins táknar lífið í Kristi og hringurinn táknar eilífðina. Fyrsta kertið nefnist friðarkerti eða spádómakerti.
Það á að minna okkur á fyrirheit spámannanna í Gamla testamentinu, sem sögðu fyrir um komu frelsarans. Við kveikjum á því í guðsþjónustunni og syngjum saman:
Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúbarnið er.
Meðlimir í Gídeonfélaginu lesa ritningarlestra og kynna starfsemi sína. Kór Fríkirkjunnar ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur organista mun leiða tónlista. Séra Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Boðið upp á kaffi og meðlæti í safnaðarheimili eftir guðsþjónustu.
sinni fjallar um vinkonurnar Elísabetu og Maríu.
VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!