Lifi lífið, guðsþjónustu sunnudaginn 19. mars kl. 14

Lifi lífið verður yfirskrift messunnar í Fríkirkjunni við tjörnina í Reykjavík á sunnudaginn kl. 14:00. Sigurbjörn Þorkelsson, rithöfundur, mun leiða messuna, hugleiða texta dagsins, prédika og flytja bænir.
Sönghópurinn Við tjörnina syngur og leiðir almennan söng við undirleik Fríkirkjubandsins sem leitt er af Gunnari Gunnarssyni tónlistarstjóra kirkjunnar, organista og píanóleikara.
Allir eru hjartanlega velkomnir á svæðið.
Það væri sannarlega ekki verra að sjá sem flesta. Komiði endilega ef þið þorið!
– Lifi lífið!