Hádegistónleikar fimmtudaginn 16. nóvember kl. 12 – Heimskringla

Fimmtudaginn 16. nóvember verður fluttur hinn skemmtilegi ljóðaflokkur Heimskringla á hádegistónleikum í Fríkikjunni. Flokkinn samdi Tryggvi M. Baldvinsson við ljóð Þórarins Eldjárns. Flytjendur eru Berta Dröfn Ómarsdóttir, sópran og Sigurður Helgi Oddsson, píanóleikari.
Tónleikarnir eru hluti af hádegistónleikaröðinni “Á ljúfum nótum” og fara fram í Fríkirkjunni í Reykjavík.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)

Sjáumst í skemmtilegu hádegi! 🙂